Einu sinni stuðbolti ávalt stuðbolti!!

30.06.2008 23:22:44 / guggaskvis87

HæHó!!

Sæl veriði!
Ég er alger grallari :þ híhí!!
Ég er búin að kaupa mér grill til að nota í góða veðrinu!! Grillað!! :haha: Ég er á fullu að vinna og hef skemmt mér inná milli! ;)
;">Fór einmitt á David Guetta tónleika 16.júní með Siggu systur sem var GEÐVEIKT stuð! Var askoti blekuð, söng og dansaði mikið og þegar ég var komin heim að þá var ég orðin svo hás að það heyrðist ekkert í mér!! Fórum í eftirpartý á NASA og við vorum komin heim kl 8 um morgunninn ef ég man rétt :þ Þvílíkt fjör!!! vona að ég lendi á svona góðu djammi núna aftur fljótlega :haha:
En mest af öllu langar mig að vera á Hróarskeldu!!!! :$ ég er abbó út í fólk sem er þar núna!!! :þ En vona að ég komist á næsta ári!! Suddaleg hátíð víst ;) Hefur þú farið á hana??
Einhvað farið út í sumar?
Ég fer ekkert :( er að vinna í aaaaaallt sumar!!! :lol: jahúú....

Kútur kveður í bili! :haha:

» 1 hafa sagt sína skoðun

05.05.2008 17:53:08 / guggaskvis87

Langt er um liðið!!!

Sæl veriði!!
Hvað er að frétta af mér?? Jú gaman að þið skilduð spurja!! Það er nefnilega mest lítið :þ
Ég satt að segja hef voða lítið verið að gera nema að læra og heimsækja fjölskylduna og vinna!;">
Ingimar litli bró er allur að komast á skrið. Ég hef hins vegar verið í átaki og gengið vel! :d Ég mun halda áfram og verð vonandi í topp formi í sumar :haha:
;">
Núna er ég bara að læra undir próf og er feginn að skólinn sé að verða búin og ég fer að vinna og get gert einhvað spennandi :d Í sól og sumari 8) ég samdi þetta lag!!! nótt sem nýtan dag :þ


Þangað til næst, hola! :lol


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.03.2008 01:12:40 / guggaskvis87

Jæja....

Nú er litla hetjan mín kominn heim aftur á klakann :haha: Það gékk rosa vel úti og er hann voða hress!! Allt í goody!! :d
Það var brjálað djamm um helgina og var svaka fjör :p Fór í partý  að verða 10 og var spjallað, drukkið og spilað!! Svo var hringt á "taxa" og farið niður í bæ á Hressó og dansað og drukkið aðeins meira!!! Það var svaka fjör!! :d Svaf super vel þessa nótt!!:p

Ég fann svolítið sniðugt:;">;">
A:      Likes to have sex
;">
B:      Likes to Flirt
;">
C:      Really likes to chill
;">
D:     Has one of the best personalities ever
;">
Ð:     Makes you smile
;">
E:      Is the greatest
;">
F:      People adore you
;">
G:      Never let people tell you what to do
;">
H:      Has very good personality and looks
;">
I:       Is always there for true friends
;">
J:       Lives life for fun
;">
K:      Really cute
;">
L:      Gorgeous eyes
;">
M:     Makes dating fun
;">
N:      Dead Sexy
;">
O:      Best in relationships
;">
P:      Popular with all types of people
;">
Q:      A hypocrite
;">
R:      Freakin' crazy
;">
S:      Easy to fall in love with
;">
T:      A sweet heart
;">
U:      Really wild and crazy
;">
V:      Not judgemental
;">
W:     Very broad minded
;">
X:      Never let people tell them what to do
;">
Y:      One of the best bf/gf anyone could ask for
;">
Z:      Always ready
;">Þ:      Looks veerd;">
Æ:     Likes to travel
;">
Ö:     Has THE most beautiful eyes




G: 
Never let people tell you what to do
U:  Really wild and crazy
Ð:  Makes you smile
B:  Likes to Flirt
J:   Lives life for fun
Ö: Has THE most beautiful eyes
R:  Freakin' crazy
G:  Never let people tell you what to do


EÐA
;">G:  Never let people tell you what to do.
U:  Really wild and crazy
;">G:  Never let people tell you what to do
;">G:  Never let people tell you what to do.
A:  Likes to have sex.


Sjáðu hvað kemur út hjá þér!!! :haha:

Kútur kveður! :p

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2008 13:35:22 / guggaskvis87

Litli bró - Hetjan mín!!!

Já hann Ingimar litli bró er í Boston, í hjartaaðgerðinni... og ef þið viljið fylgast með þá er síðan :
 www.barnaland.is/barn/70923

Ef þið viljið fá að skoða sendiði mér þá línu og ég læt ykkur fá aðgangsorðið ;)
megababe6@hotmail.com

Það hefur gengið mjög vel hjá þeim og er hann mest sofandi vegna óþæginda en er allur að koma til!! :)

Annars er það bara að frétta að það er mikið að gera í skólanum og er búin að vera batna mikið frá veikindunum :haha: þar til í dag :^) Ég fékk smá aukaverkanir og þurfti að stökkva á bráðamótöku og þar mætti ég versta óvini mínum allra tíma :evil: -Nálinn- *hrollur* :whut: ég þurfti að fá sprautu og var send heim til "að hvíla mig" :$ mig svimar rosa og læknirinn sagði að það væri eðlilegt og að best væri fyrir mig að vera heima í dag!!
;">En það var ekki meira í bili.... :p

Kútur kveður!! :d

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 10:04:21 / guggaskvis87

Árin fljúga framhjá manni... Oo ..... Maður verður orðin 30 áður en maður veit af!! :D

Sælt verið fólkið!! :D
Ég hef afskaplega lítið að segja.. Nema allir verða að sjá The Mist í bíó!! Alger snilld :haha: og Charlie Wilson´s War er líka góð!! :D
Ég átti svo afmæli sunnudaginn þann 27.janúar! Yay! :haha: er fyrir þá sem eru ekki viss þá er ég orðin 21! 8) En það sem ég gerði á afmælisdaginn var að vera veik og fara til læknis :$ sem var ekki alveg það skemmtilegasta en fékk góðan mat hjá mömmu og pönnsur :haha: Ég hef bara verið á fullu í skólanum og er próf aldan að fara byrja :P Fúff! verður alveg nóg að gera 8|

En jæja er að vinna núna en í kvöld verður sko stuð :haha:
Segi ykkur frá því næst!! :P :haha:


Au revoir!!! :D

» 1 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 18:52:11 / guggaskvis87

Langt er um liðið...

Jæja kindurnar mínar!
Það er búið að vera ansi mikið að gera hjá mér! ég er nú mest í skólanum og aðalega að vinna um helgar! :D ég er samt frekar slöpp og það er einhvað sem ég skil ekki hvað er í gangi með mig... :S en svo snúm þessu nú jákvætt þá er ísland að vinna í hanboltanum sem ég er að horfa á :D og er búin að vera dugleg að heimsækja jónínu og rakel!! :D Það er rosalega gaman að þær séu fluttar í bæjinn!! :D Ég hef nú voða lítið að segja í bili en endilega látið í ykkur heyra ;) segi kannski einhvað meir eftir helgi :haha:

Bið að heilsa í bili!!!

» 4 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 16:30:19 / guggaskvis87

GLEÐILEGT ÁR!!!!

Ég vil óska öllum gleðilegs nýss árs og þakka fyrir það liðna!! :D

Ég skemmti mér konunglega um hátíðarnar!! það var ofsa gaman heima!! :D Jólatréð var rosa flott og maturinn var rosa góður!! :haha: Við bökuðum 3 tegundir af kökum og nokkra botna! svo það var mikið um snarl og fékk maður nokkur aukakíló um hátíðarnar!!! :haha: hehehehhe... :$
Það sem er mest hægt að segja frá eru áramótin! Það var sko stuð á gamlárskvöld! :D Maður byrjaði á því að vakna og slappað af og skorið niðru grænmeti og passa ingimar! Svoo var komið að brennunni svo mín fór með pabba, jóni og Ingimar á fordinum og sigga og michale fylgdu á eftir á bimmanum!! svo skildi ég Ingimar eftir með pabba í bílnum og fór svo að brennunni og horði á flugveldasýninguna með Andra, siggu og co. Hún var mjög flott!!! :P Svo var farið heim og pabbi byrjaði að elda áramótasúpuna og jói (kallinn hennar Ingunnar systir mömmu) byrjaði að gera til fyrir kjötið!! Svo var lagt á borðið og fengið sér súpu... svo kjet :haha: svo var fari í vinahús í smá party og svo var farið aftur heim að horfa á skaupið sem var svona a. ok. En eftir það var farið að skjóta upp í þessu ægifína veðri sem var úti :D Rok og rigning!!! en sumir ákváðu að skjóta upp en ég geymdi alveg mitt fyrir þrettándann!! ;) Svo var virkilega farið að rigna svo allir fóru inn og vorum við tilbúin fyrir ballið!! svo var bara slappað af og svo var klætt sig í útifötin og stokkið af stað á ballið!!! :D OG ÞAÐ VAR SVOOOO MIKIÐ STUÐ!!!!! Það var engu öðru líkt!!! :haha: Svoo gaman!! :D Við dönsuðum fram á rauðann morgunninn og var alveg æðislegt!!! :haha: Þetta var geðveikt ball!!! :P Svo var farið heim að borða snakk og svo skellt sér í
bólið!!
Svo á nýarsmorgunn var vaknað í kaffi og kökur og allir slöppuðu af og haft það gott!!


Svo er ekkert meira að segja í bili!!! :haha:
Endilega segið frá hvernig var hjá ykkur :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 12:35:59 / guggaskvis87

Ég verð heima um jólin....

Ó JÁ!! Ég verð heima um jólin :D það styttist ótrúlega í þetta. BARA 2 dagar!! Yay!!! :D
Ég er búin að versla allar jólagjafir og er að fara pakka þeim inn á morgunn því ég ætla að vera tilbúin á fimmtudags kvöldið svo ég geti ÞOTIÐ (hægt samt :P ) heim!!! :D
Jólin eru á leiðinni, ég sá þau á heiðinni :D hehehhe...

Annars var ansi gaman um helgina. Á föstudaginn var ég að vinna til 5 og skellti mér svo í ljós (orðin freknótt og sæt) hehehe.... og svo fór ég í kringluna með jóa að hjálpa honum að versla jólagjafir fyrir dömurnar í hans family :D og skelltum okkur í ríkið! Já í ríkið!! keyptum bara slatta af ýmsu fyrir morgunndaginn!! ;) svo fór ég bara heim til tengdó og kíkja á jólaskraut sem hún keypti í jólabúð í svíþjóð! var ógó smart!! :haha: svo gaf hún mér þessi æðislegu sætu köku box með kökum í!! :haha: Lucky mee!!!! :D svo fór ég bara heim að slappa af og taka aðeins til!! svo bara steinsofnaði ég!!
Á laugardaginn koma the hele family í bæinn að klára að versla jólagjafir og vildu allir fá mína  hjálp :D að finna fyrir hvort annað!! heheh.. :D (ég hlýt að hafa svona góðan smekk eða bara svona mikið vit á gjöfum :haha: ) En ég þeyttist um alla borg með hverjum fjölskyldu meðlimunum á fætur öðrum og fundum við gjafir hægri vinstri :haha:  Ég var alveg að versla til 9 þá var ég að koma heim og skellti mér í sturtu og að tilefni FYRSTA djamminu hans Jóa :D ákvað ég að bjóða fólki heim í smá hitting og spil!! Svo þegar mín var tilbúin þá var fólkið farið að steyma inn og var svo komið sér vel fyrir og spjalla!! svo dró mín fram Party og co. EXSTREAM!!! :P og þá var mikið hlegið glens og gaman!! :haha: Svo þegar fór að líða að kveldi þá var farið að gera sig til á djammið! Hjalti og Rafn voru fyrstir til að yfirgefa staðinn! svo fórum við Sigga, Jói og Heimir :D (restin fór heim að sofa) Svo var keyrt niðrí bæ á glaumbar og tjúttað þar fram á rauðann morgunninn :haha:  Svo voru allir orðnir askoti svangir og var þá farið á N1 í pylsur og Subway!! :P Svo var skellt sér heim og farið í háttinn kl 7 :P Zzzzz.... zzz... En eins og ég sagði hér áðan þá var þetta fyrsta djammið hans jóa og samkvæmt mínum bókum þá skemmti hans sér bara askoti vel!! Verður allavega endurtekið!! :D
Svo á sunnudaginn var vaknað kl 12 og farið framúr og bara horft á tv´ið og gengið frá í rólegheitunum... Svo um 4 fór maður að hitta Jónínu og Rakel (sætustu skvísur í heimi) ;) Og er litla skottan orðin lasinn :S  en ég fékk lánaða mömmu hennar í smá jólagjafa leiðangur og vorum við eldsnöggar og skemmtum okkur bara vel!! :haha: svo á heimleiðinni var kippt með Dominos pizzu fyrir karlinn sem var heima með skottuna :P Ég vil þakka öllum fyrir frábæra helgi og verð nú að segja að það verður að vera meira svona á nýja árinu ;)


Jólaormurinn kveður í bili!! :haha:
Aurevoir!! :D

Ég verð alltaf heima um jólin.. dadadararara... hmm hmmm hmmm...

» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 10:40:06 / guggaskvis87

Stúfur var sá þriðji....

Þriðji jólasveinninn

Stúfur hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.

Hann hljóp með hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.


Hæ menn og konur!! :D
ERUM VIÐ AÐ TALA UM VEÐRIÐ!!!! Það er brjálað verður!! veistu.. ég vildi að ég hefði haldið mig heima í dag :S ég er bara farin að hafa áhyggjur af að ég komist ekki heim aftur það er spá svo hrikalegu veðri!!! Líka á fimmtudagsnóttina þá vaknaði ég kl 3 við þennan þvílíka hávaða!! Þá voru garðhúsgögnin mín, sem voru á svölunum mínum (á 3.hæð b.t.w.) að taka á loft!!! Þetta voru svona plast sett eins og alllir áttu í gamla daga! og borðið það hófst á loft og skall í svalahurðina með þvílíkum látum og fæturnir duttu af en borðið flaug niður af svölunum og splundraðist á lóðinni!! 8| svo byrjuðu fæturnir að fljúga á ný! og voru staðráðnar í að brjóta svalahurðina (sem er öll úr gleri) og flugu upp og skelltust svo á hurðina! ÞVÍLÍK LÆTI!!! Ég ætlaði að reyna opna hurðina og taka dótið inn sem var en á svölunum en Andri var þá búin að loka öllum gluggum í húsinu og var svo mikill þrýstingsmunur að ég gat ekki opnað!! :( svo ég horfði á borðið á lóðinnni og fæturnar fljúga niður!! Síðan svaf ég þetta af mér og týndi svo upp partana morgunninn eftir (eða það sem var eftir af borðinu) til allra lukku voru stólanir enn á svölunum, því þeir voru fastir saman!! Ég henti dótinu inn í gær og þar skal það vera þar til þessu yfir líkur (smá teiknimyndafrasi :haha: )
Én allavega! EINN dagur í sprengjuna miklu!! Jói á djammið!!!!! YAY!!!:D það verður svaka stuð!! Ég ætla að skreppa með hann í ríkið í kvöld og svo verður bara stuð á morgunn!!! :D Við Sigga látum hann dansa fram á morgunn!! Hann verður með harsperrur þynningsmorgunninn! :D heheheheh... hehe... hehemmmm...:$ Hlakka ógó til!!
*1 dagur í djamm
*6 dagar þar til ég fer heim í jólafrí
*10 dagar til jóla
*17 dagar til nýss árs (eða þannig... hvernig sem þið viljið orða það )  :haha:
Happy happy happy hoj so happy to day!!! :D
Endilega ALLIR commenta ;)
Heyri í ykkur jólasveinarnir mínir :D


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.12.2007 21:34:23 / guggaskvis87

Stekkjastaur kom fyrstur stirður eins og staur.......

Hæj jólagosarnir mínir :D Fyrsti jólasveinninn að koma til byggða í kvöld! :lol: VÁ hvað þetta líður hratt!! :haha:
Þá er aðeins ein helgi eftir þangað til ég fer heim fyrir jól og ég hlakka mjög svo til þessarar helgar því þá ætla ég með Siggu og Jóa á djammið (kannski maður nái að draga Andra með líka hehehehe...) :D Ennnnnnn..
Þessi helgi var líka fín fyrir utan að ég var með hita og lasin!:S Ég var veik heima á föstudaginn og slappaði af og tók til! svo þegar fór að líða að kveldi þá fór ég afstað á Hvolsvöll þar sem ég var búin að lofa móður minni að passa litlu bræður mína! svo þegar ég kom þá faðmaði Ingimar mig alveg og knúsaði!! :D svo kom frændur mínir og frænka í heimsókn og ég passði þau á meðan fullorðna fólkið fór að skemmta sér! svo var fíflast, borðað og horft á tv og étið nammi og svo farið að sofa!
Laugardagurinn var líka allt í lagi! en ég var frekar slöpp og með smá hita. Sigga systir var að vinna og ég var ein með ormana heima og Sigrún (litla frænka) vildi fara út svo við fórum út en klæddun okkur súper vel og fórum aðeins út að leika! svo slöppuðum við af ég sofnaði snemma því ég var slöpp og þurfti að vakna snemma því ég var að passa Ingimar!
Á sunnudaginn vaknuð við Ingimar kl 10 og kúruðum til 11 svo fórum við framm borðuðum og chilluðum bara þar til mamma kom heim! svo gerði ég mig til og ákvað að far snemma heim að hvíla mig því ég var enn með hita! ég svaf ekkert vegna þess mér var svo illt í maganum svo ég var heima í gær með smá hita! Mamma, jón og Ingimar komu í heimsókn því þau þurftu að vakna snemma og fara til augnlæknis og svona stuff! :haha: svo við elduðum okkur pasta og ég föndraði og það vara bara nokkuð gaman! En í stuttu máli.. Slök helgi!! og hlakka mikið til næstu!
verð lika mikið í vinnunni því það verður slatti að gera í vikunni! :D Jæja ætla að fara gera einhvað af mér ;) heheh...

Hvað gerðið þú um helgina??
*A smile goes a long way* :D
-Það eru 12 dagar og 2 tímar til jóla- ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 10:35:39 / guggaskvis87

Jæja jólasveinarnir mínir....

Þá er enn einni helginni af lokið og styttist óðfluga í jólin! :D
-En þó hafa ekki bara góðir hlutir gerst þessa helgi! Því bið ég fyrir þeim er eiga í vandræðum eða sorg að stríða á þessum árstíma!-
En núna um helgina var ansi mikið að gera hjá mér! Á föstudaginn var ég að vinna til 17:30 og fór þaðan í mat til andra með emmu og þórir! Við pöntuðum okkur pizzu og glápuðum á sjónvarpið á meðan við borðuðum! svo þegar fór að líða á kvöldið þá kom Júlía í félagskapinn og var þá kátt á hjalla og fóru allir í helgargalsinn og var ýmist hlegið eða forðað sér undan bananahýði! :D hehehe... Síðan róaðist allt niður og fékk ég þetta þvílíka mígreniskast svo ég dreif mig heim og STEINsofnaði! Zzzzzz...:$
Svo á laugardaginn vaknaði mín ELDsnemma (kl 10 :$) og fór að taka til því minns átti von á riddaraliðinu í heimsókn! (Mömmu, pabba, jóni, ingimari, siggu og co.) Svo hringdi mamma (er ég var í miðri tiltekt) og bað mig að koma heim til afa! Ég gerði það og fórum við mæðgur með þá feðga (afa og guðmund(bróðir pabba)) að versla föt! Við vorum ekki lengi að finna flott föt á hann afa því við fórum beint niður í Andrés á skólavörðustígnum og versluðum bara heilmikið! :D Síðan var skroppið í smáralindina og keypt á þann gamla 2´na skópör og klukku í nýju íbúðina 8) þegar því var af lokið var afi bara orðin þreyttur á þessu asi svo við drifum okkur heim í pulsur/pylsur (hvernig sem þið viljið hafa þetta :lol: ) og fengum okkur kaffi og slöppuðum af! svo ákváðum við að skella okkur í bíó systkynin (moi, sigga og jón) á HITMAN og var hún bara askoti góð! :haha: kom á óvart! hehehe :P mæli alveg með henni ;) Síðan eftir það ákváðum við systur að skella okkur niðrí bæ á smá djamm (mín reyndar edrú (vildi það bara svo ég fengi að keyra bimmann :P ) hehehhe... neinei! nennti ekki neinu taxaveseni) Það var bara askoti gaman við byrjuðum á því að rúnkta aðeins á laugarveginnum á meðan sigga svelgjaði í sig 2 bjóra :haha: heheheh... Svo lögðum við bílnum og löbbuðum á Prikið og hittum þar karlinn hennar siggu og dönsuðum aðeins þar og þar var alveg urmull af fólki svo við skvísurnar ákváðum að fara á hressó! :P þar í röðinni voru nokkrir skotar og vorum við akkurat fyrir aftan þá (grrrr.. ógó flott hvernig þeir tala! :P ) Við vorum þarna 3 í röðinni að dást af þeim því svo undarlega vill til að við hittum eina stelpu sem við lékum við þegar við vorum litlar á sigló hjá ömmu :D það var askoti merkilegt! :haha: Jæja en svo var þetta að verða komið gott svo við skelltum okkur heim og ég svo þaðan heim til andra sem beið eftir mér STEINsofandi í sófanum því kl var nú orðin 5:30 hehehhe.. svo ég vakti hann og við klöngruðums upp í rúm og Zzzzzz... :lol:
Svo á sunnudaginn var vaknað um 12 og skotist heim í mat og snarl! (mamma fór í bakaríið, rosa dugleg) :) Jæja! nú var kominn jólagjafa tími! við mæðgur og jón brói skruppum í kringluna á meðan þeir feðgar (pabbi og Ingimar) voru að leika sér heima! ;) Við löbbuðum fram og aftur fram og aftur..... nokkra hringi :$ og fundum nokkrar gjafir og skyrtur á kallinn (jón) rosa flottar :D Síðan eftir að við vorum öll orðin svöng og kringlan að loka þá  var hringt og okkur boðið í vöfflur og snarl heima hjá Valdísi og helga! það var alveg yndislegt! MmmmmmMmmm.. :haha: síðan eftir að hafa hvílt okkur aðeins fórum við mæðgurnar í Garðheima í jólaskrauts- og föndur leiðangur! :D (eins og minni er lagið;) Og var þar verslað hátt og látt! (kom manni virkilega í jólagírinn) :P Svo þegar því var lokið skutlaði ég mömmu til afa og við litum þar aðeins inn svo skaust ég heim til andra í mat og mamma og co. fóru heim (á Hvolsvöll) ;) Svo eftir matinn fórum við heim og lögðums eins og skötur fyrir framan sjónvarpið og svo var bara lagt sig! :haha:
Fúff! jæja þetta var svona helgin hjá mér í pörtum!! :P hehehe..
En nú eru 20 dagar til jóla og er ormurinn alveg búin að ná tökum á mér! ég fer nú hægt af stað með jólaskrautið :D og held áfram að hlakka til jólanna alveg eins og mér einni er lagið :haha:
Jæja allir endilega commenta!!!!!!
Jólaormurinn kveður í bili! :P
P.s: svarið skoðunarkönnunninni!!

» 6 hafa sagt sína skoðun

29.11.2007 12:21:11 / guggaskvis87

Hún á afmæli í dag Hún á afmæli í dag...

Eins og ég sagði:
Hún á afmæli í dag Hún á afmæli í dag Hún á afmæli HÚN MAMMAAAAA!!!! :haha: Hún á afmæli í DAGGGGG!!! :D
Ég vil tileinka þessu bloggi henni mömmu minni sem er 42 ára í dag en er enn 20tug gella í mínum augum!;) Hún er með hjarta úr gulli og fallegasta kona íslands! Til hammingju með daginn!! :P :D

Það er nú ansi margt framundan og jólaormurinn er búin að ná hálfum tökum á mér!! :lol: ég er farin að þrífa og taka óhemju mikið til :haha: og svo er ég farin að pæla í jólaskrauti sem ég ætla að kaupa fyrir íbúðina! :D
En eins og ég sagði, margt og mikið framundan:

*-2 dagar í jólagjafa innkaup (1.des) :D
*-9 dagar að jólabaksturinn hefjist fyrir alvöru (8.des) :lol:
*-15 dagar í djamm með Nönnu og Jóa (helgin 14-17.des)
-We are going to make you dance boy!- :haha:
*-22 dagar í ammæli Siggu systur (21.des) :P
*-24 dagar að Þorláksmessu (23.des) :$
*-25 dagar að Aðfangadag (24.des) :D
*-28 dagar í afmæli Jónínu vinkonu!! (27.des) :D
*-29 dagar þangað til pabbi á afmæli (28.des) VÍÍÍÍÍÍ :haha:
*- og svo loks 32 dagar til Gamlársdags (31.des)


Ég er öll á nálum mig hlakkr svo til! :P :haha: svo mikið í gangi! Hehheeh!

Eitthvað spesíal á döfin hjá þér? :P

Jólaormurinn kveður í bili!
Hóhóhóhóhóh.....


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 11:16:06 / guggaskvis87

Jólin jólin, jólin koma brátt, jólaskapið kemur smátt og smátt! :D

Góðan og blessaðan daginn börnin mín góð!! :D
Hvað er títt? 8)
Ég skemmti mér ansi mikið þessa helgi og hlakka ég enn meira til næstu sjáiði til! eins og nefndi hér í seinasta bloggi þá er ég algert jólabarn og hef mikið gaman af að föndra og skreyta og pakka inn gjöfum og allt sem þessu fylgir! :P og næsta sunnudag er 1 í aðventu! :haha: en anyway... :$ aftur að þessari helgi :D

Föstudagurinn byrjaði með vinnu að sjálfsögðu og eftir vinnu var flýtt sér heim og klætt sig í kjólfötinn og þotið út á árshátíð Munus sf.´s! ;) Það var askoti gaman! Við fórum á jólahlaðborð á Broadway og George Michale í 25 ár sýninguna! :P Það var rosa gaman og maturinn fínn (en ég verð að viðurkenna að meistarakokkarnir þarna komust ekki í hálkvisti við jólamatin hjá mömmu :D ) svo skáluðum við og fengum okkur eftirrétt! svoo byrjaði show´ið og mér fannst það bara rosa flott eins og konunum við borðið :haha: en ekki voru allir karlarnir jafn hrifnir! :$ en þetta var rosa stuð! og svo eftir að show´ið var búið þá fórum við andri heim til hans og hann fór að spila í tölvunni Assins Creed ég fylgdist með af ákafa og svo bara gafst ég upp og steinsofnaði! :lol: (var ákaflega spennandi :$ ) hehehehe... :haha:
Á laugardaginn vaknaði ég bara um hádegisbilið og ákvað að vera bara löt og slappaði af! við andri og þórir hengum í tölvunni til 5 og þá dreif ég mig heim og hitti þar mömmu, pabba, Ingimar og vinafólk þeirra! Ingimar var rosa glaður að sjá mig og brosti alveg út að eyrum þegar hann sá mig koma inn um dyrnar! :D Alger dúlli! Þannig lá nú í því að þau voru þarna að því ég var að fara passa litla bróa því pabbi var að fara með mömmu í óvissuferð! :haha: Svo að þau skemmtu sér konunglega! Eins gerðum við Ingimar :D Við byrjuðum á því að horfa á fótbolta og hlæja mikið af þeim sem duttu eða skoruðu :P  og panta pizzu frá Dominos (það var nú einu sinni Mega vika) :) Svo hringdi Jói og spurði hvort hann mætti fá Indiana Jones lánaðan... ég sagði audda "ekki málið" :haha: svoo kom hann og spjallaði aðeins við okkur systkynin!! ;) svo var bjöllunni hringt og Jói svaraði og sagði "halló" og hinu megin var sagt "Dominos" og hann hleypti þeim inn svo náði ég í kortið mitt og fór til dyra! þá voru þeir bara tveir með pizzuna og ég beið bara eftir restinni af riddaraliðinu! :haha: hehehehehe...heh.. :$ En þá voru þeir báðir pólskir og kunni hvorugur íslensku 8| svoo réttu þeir jóa pizzuna sem stóð í dyrunum og töluðu einhvað saman á pólsku svo sagði annara "it´s 2230" á ensku og ég sagði "yes, here you go" og rétti þeim kortið! þá dró annars fram posann og leit á hinn og var að spurja hvaða takka hann átti að ýta á og leit á hann og mig til skiptis! ég brosti bara :D þá voru þeir sko báðir pólskir og annar með hinn í þjálfun :haha: svo virkaði posinn ekki og ég bara stóð þarna og þeir horfðu bara á mig og snéru svo posanum til mín og spurðu "what does that mean?" ég leit á hann og það stóð einhvað -bunki buin sendid inn nyjan- ég bara 8| "uuu.. veit ekki!" svo þeir horfðu púslaðir á þetta og töluðu bara pólsku og ég bara 8| svoo spurðu þeir hvort ég væri með pening og ég sagði "uu.. not sure! but i´ll try to dig some upp!" svo loksins fann ég pening og sá nýji reyndi að telja afganginn og hinn leiðbeindi honum um myntina... ég stóð bara enn 8| svoo var þetta allt afgreitt og þeir þökkuðu fyrir og brostu (samt hálfskömmuðust sín) en ég brosti bara til baka og hló :haha: þetta var þvílíkt ævintýri að fá eina pizzu! :lol: ég var bara fegin að jói leit eftir Ingimari á meðan! :P svoo loksins fórum við að borða og jói vakti upp liðið sitt til að fara horfa á Indi! Svo spjölluðum við 3 um ýmis málefni! pólitík, tónlist og myndir til að nefna eitthvað! :haha:  svo fór jói en við Ingimar héldum áfram að leika okkur og fíflast! svo var nú kominn tími á að hátta manninn svo við skelltum okkur í það og héldum svo áfram að leika okkur og horfa á sjónvarpið! en Ingimar var ekki á því að fara að sofa svo við fórum ekki inn fyrr en að verða 00:00 og hann sofnaði svo um 00:30 svo rétt eftir að ég var búin að stilla mér upp við tv´ið með popp og kók að klára að horfa á 300 þá gengu þau gömlu inn hæst ánægð með ferðina! :D pabbi hoppaði beint í rúmmið en mamma horfði smá á 300 með mér! svoo fór hún líka að sofa! ég kláraði að horfa á myndina og svo var dynglað bjölluni og ég alveg 8| þá var þetta bara hann andri að sækja lyklanna af húsinu sínu! því hann var víst læstur úti :lol: en svo fór hann heim og ég drattaðist í rúmmið og skellti Friends í og dundaði mér í tölvunni þar til ég alveg gafst upp og sofnaði zzzzzzzzzz...  zzzzz....
Sunnudagurinn var alls ekki eins og hann var planaður en alls ekkert slæmur ;) Pabbi var flogin út til London á leik með West Ham gegn Tottenham og við mamma og Ingimar skriðum fram úr um hádegi og fengum okkur að borða svo var planið að fara heim á Hvolsvöll að hefja jólabaksturinn en áður en við færum ákváðum við að kíkja rétt við hjá Pétri og svo afa! Fyrst fórum við til péturs og var þar spjalla og horft á Tomma og Jenna fram eftir öllu og var svo tíminn flotinn frá okkur svo við ákváðum að drífa okkur til afa og þar var borðað kaffi og spjalla þar til tíminn var alveg að verða farin og þá var lagt afstað heim á leið! en kl var þá orðin 4 :$ svo þegar við tókum bensín og kíktum í bónus á selfossi þá var hann alveg farin! því þegar loks var heim komið þá var kl. orðin 6 og ekki sjéns að við næðum að baka einhvað svo við ákváðum að klippa Ingimar í staðinn og varð hann alveg snar og fannst þetta ekki góð hugmynd!:S en það endaði með því að sigríður systir bjargaði honum og setti hann í bað, þá varð allt í lagi! Svo ákvað ég að ná í jóladótið mitt út í bílskúr til að taka heim (til rvk) því ég á bara ekkert pláss lengur þarna fyrir austan -nema til að gista ;) :D svo ég ákvað að skreyta vel heima (þegar af því kemur -ekki búin af því ) það var rosa gaman hjá okkur mömmu að leita af dótinu og svo var kl bara að verða 9 að ég ákvað nú að fara leggja afstað til baka! avo henti ég inní bíl jóladótinu og veskinu og hélt svo heim á leið í 2 sinn :haha: (þá til rvk) hehehehe.... :P svo þegar þangað var komið þá náði ég í hann föður minn -sem var þá læstu úti- í vinahús og fór með hann heim! svo kom andri og var talað um fótbolta og svo farið að sofa! Annasamur sunnudagur :P :haha: Fjúff!
En allavega.. endilega commentið hvað þið gerðuð :P

p.s: Það var 1-1 úrslitinn í leiknum!

Vinnuormurinn kveður í bili! :haha:
Over and  out! :D

» 9 hafa sagt sína skoðun

15.11.2007 11:30:15 / guggaskvis87

Æ good morning to you laddys!

Sæl veriði!
Það er orðið ansi langt síðan ég sagði ykkur einhvað skemmtilegt!
Ég fór nú til Skotlands 1-4 nóv. með kæró og vinnufélugunum hans! Við vorum að halda uppá 25 ára afmæli Skerpu! :D  JEIIIIII!!!! Það var askoti gaman! (fyrir utan það að ég er skíthrædd í flugvél! 8| ) en þetta var ansi gaman! við skoðuðum landið og mikið inní verslanir ;) skoðuðum kastala og versluðum mikið! Svo borðuðum við ansi mikið af góðum mat! DÍLÍSOUS!! :haha: :P Ég var svo heppin að ég fann bara ansi margar jólagjafir JÁ og það í nóvember :D ansi hissa sjálf! en fyrir þá sem ekki vita þá er ég algert jólabarn og er þetta uppáhalds tíminn minn á árinu :haha:
Um síðustu helgi fór ég heim á Njáluslóðir og hitti gamla settið og þau yngri :lol: hehehe.. mjög gaman að koma heim! nema hvað að Ingimar litli var með hlaupabóluna en ansi hress svona miðað við aðstæður! það versta var að sjá hann reyna að klóra sér! manni langaði svo að hjálpa en allt kom fyrir ekki! hann er rosa duglegur! Mín var nú ansi góð um helgina og fór að baka :haha: jamms bara kominn í jólabaksturfýlinginn :D nema ég bakaði kanilsnúða langaði svo í 8) Ef satt skal segja þá er ég alveg að finna jólin nálgast og finn ég ákaft jólaorminn vera ná tökum á mér :P
Hvað með þig?
(því miður er ekkert pláss fyrir myndir á síðunni en þið eru ákaft velkominn í kaffi og koníak hjá mér til að líta yfir þær! (if you know what i mean ;) ;))
En jæja verð að hætta! mikið að gera í vinnunni! Vinnupúkinn sleppir mér ekki fyrr en um 7 í dag! :$ svo að við heyrumst!
Bless í bili!! :D


» 4 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 19:23:04 / guggaskvis87

Jæja litlu lesendur mínir....

Hæjjjjjjjjjjjjjjjj!!!! :D
Hvað segja menn?? og konur?? :haha:
Það er mest lítið að frétta af mér...
En hvað segið þið?? :P
Hvað á að gera um helgina?? :D
Ég er svoolítið klikkuð!!
Þið vitið.... :haha: hehehhehe....... :$
En endilega látið mig vita hvað er að frétta af ykkur!!!
Ég blogga svoo um einhvað skemmtilegt strax við tækifæri!!!! :D


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
RSS tengill
Vinnan